Exta lipurð í notkun
Gianni Ferrari Turbograss vélarnar eru sérstaklega liprar í notkun. Þær hafa O gráðu beygjuradíus (ZTM).
Tvívirk nýstárleg vökvaskipting ásamt smæð vélanna gerir þær einstaklega liprar og hraðvirkar í allri notkun. Sérstaklega á svæðum með trjám, runnum, blómabeðum og meðfram göngustígum í smærri görðum og lystigörðum.
Spara umtalsverðan slátt með orfum og handvélum, ásamt því að safna grasinu upp í graskassan, sem sparar einnig tíma og fyrirhöfn.
Sláttur/sláttugæði
Turbograss sláttuborðin eru 110cm. og 130 cm. breið. Fyrirtækið hefur einkaleyfi á hönnun þeirra sem er „nýjung á markaðnum“ Sláttuborðin þeyta háu og blautu grasi vel upp í graskassann auk þess að skila frábærlega fallegum slætti.
Tvær nýjungar, sem Gianni Ferrari fyrirtækið hefur einkaleyfi á!
Snúningsátt hnífa: Hnífarnir snúast í gagnstæða átt í samanburði við hefðbundna sláttubúnaði á markaðnum. Þessi snúningsátt hnífanna hefur ótrúlega jákvæð áhrif á sláttugæðin og afköstin við að safna upp grasinu.
Frambrún sláttuborðanna: Sláttborðin uppfylla allar nýjustu öryggisreglur. Frambrún sláttuborðanna er opnanleg og er hún hærri en hæð hnífanna. Þessi hæðarmismunur kemur í veg fyrir að grasið klessist saman, leiðir til fallegs sláttuárangurs einnig í háu grasi. Framhlífin lokast þegar koma þarf í veg fyrir að steinar eða annars konar hlutir skjótist út úr sláttuborðinu. Þessi einfalda útfærsla uppfyllir allar nýjustu öryggisreglur. Sláttuborðið er hannað með tveimur diskum og eru beygðir hnífar festir á þá og og snúast þeir til sitthvorrar hliðar frá miðju
Þessi útfærsla hefur 3 aðalkosti:
- Er extra sterk og getur staðist erfitt álag
- Tvöföldu hnífarnir koma í veg fyrir að samanþjappað gras festist uppi í sláttuborðinu, sem leiðir af sér fallegan slátt og góða uppsöfnun.
- Grasið er slegið smærra, fer því hraðar upp í graskassann auk þess að þjappast betur og taka minna pláss.
Sláttuborðin fljóta (hafa floteiginleika) í slætti og virka því vel á mishæðóttum og erfiðum grassvæðum. Sláttuborðinu er hægt að lyfta í upprétta stöðu (vökvaknúið) við almenn þrif og við hnífaskipti Þannig er öll umhirða sérstaklega einföld og þægileg.
Turbograss sláttuvélin slær og safnar upp grasi, laufi, rusli, dósum, plastflöskum o.fl. 4.000 – 8.000 fermetrum á klst. Auk þess slær vélina fallega og safnar grasinu vel í graskassann.
Innblásturs- og uppsöfnunarkerfi
Stór, og öflug vifta (vacuum) blæs inn lofti. Viftan er uppbyggð með 4 bognum blöðum, sem auðvelt er að skipta um ef þau skemmast eða slitna. Blöðin koma í veg fyrir að gras festist á þeim auk þess sem viftan minnkar ummál laufa um 5:1.
Grassafnari
Grassafnarinn er framleiddur úr sterku/þolgóðu „polyethylene“ efni. Hann er með síu, afturhurð, túðu sem dreifir grasinu um kassann og flautu (viðvörunar) sem lætur vita þegar kassinn er fullur. Grassían er úr zinkhúðuðu járnneti og hlífðarplötu úr plasti (sem minnkar tímann við þrif). Afturhurðin opnast sjálfkrafa þegar graskassanum er lyft aftur. Sterkbyggður búnaður lyftir graskassanum upp í allt að 180 cm. hæð ( valmöguleik) og tæmir þá úr kassanum á auðveldan og fljótlegan hátt upp á vörubílspalla eða í kerru. Allur þessi útbúnaður minnkar gríðarlega tímann sem fer í slátt og í að losa sig við grasið. Þessi búnaður er vökvaknúinn sem hámarkar nýtingu mannafla hverju sinni.
Flutnings box
Hægt er að nota vélina án graskassans og þá setja aluminium box í staðinn. Getur verið mjög gagnlegt fyrir flutning á sandi, leir og annars konar efni.
Afturhjól vélarinnar
Einfalt afturdekk fyrir léttleika og snerpu
Tvöfalt afturdekk fyrir léttan þrýsting á grasflötina
Afturöxull með hjólum til endanna tryggir stöðugleika þegar graskassanum er lyft við losun á grasi.
TURBOGRASS aukabúnaður
Hefðbundið sláttuborð eða tvíklippi. 110-130-150 cm. breið
Sláttuborðin eru 110cm, 130cm, eða 150cm. breið og vegna nýstárlegrar hönnunar skila þau extra góðum sláttuárangri. Þau eru örugg og sterk við erfiðar aðstæður og skila góðri sláttuáferð. „Tvíklippi sett“ fylgir, það saxar grasið smátt og dreifir jafnt yfir grasflötinn. Sláttuhæðina er stillt á nokkrum sekúndum með einföldu handfangi.
Tvíklippi sláttuborð, 110 cm
Sláttuborð sem þeytir til hliðar, 130 cm
Hefðbundið sláttuborð og tvíklippi, 130 cm
Tvíklippi sláttuborð og sem þeytir til hliðar, 150 cm
Sláttuborð í grófan/erfiðan slátt, 110 cm
Slæsari/mosatætari, 100 cm
Slæsarinn er afkastamikill, nýtist því einnig í slæsun á stórum svæðum. Hentar líka við að fjarlægja mosa úr grassverðinum og við undirbúning grassvæða fyrir sáningu.
Snjótönn
Snjótönnin er 120 cm. breið (með vökvalyftu). Turbograss sláttuvélina er þannig hægt að nota einnig yfir vetrarmánuðina.
Snjóblásari
Snjóblásarinn er 2ja hraða, 110/130 cm breiður og vökvaknúinn. Plexiglas plata hlífir notanda vélarinnar fyrir snjógusum.