Walker T25i tree

Walker T-Serían

T-serían var hönnuð á níunda áratugnum og var megin markmiðið að koma fram með öfluga, 2ja cylindra bensín sláttuvél. Þrír kostir eru í boði og sóma þeir sér vel í eigu verktaka, stofnana eða bæjarfélaga. Hinn 23ja hestafla vatnskældi mótor (T23) kom fyrst á markaðinn. En 25 hestafla loftkældi EFI Kohler mótorinn (T25i) er sá allra vinsælasti þar sem bensínsparnaður EFI er 30% miðað við aðra blöndungsmótora. T30i sláttuvélin, er sú síðasta sem T-serían býður upp á en hún er með vatnskældum EFI mótor sem skilar 30% sparnaði í bensínnotkun auk þess að endast eins vel og vatnskældir mótorar.

T-serían notar Walker sláttuborðin og fáanlegan fjölbreyttan fylgibúnað. Á þann hátt geta einkaaðilar, verktakar, stofnanir og bæjarfélög notað T-seríu sláttuvélarnar frá Walker allt árið um kring í hvers konar vinnu.

 

Walker T25i

T25i Walker sláttuvélin

Nýttu þér frábæran eldsneytissparnað (EFI) T25i sláttuvélarinnar. Samtímis skilar vélin þér góðu afli og lipurð sem nýtist vel í slætti við erfiðar aðstæður

  • Walker sláttuvélarnar (sláttubúnaður að framan) skila þér flottum sláttuárangri
  • Sparaðu bensínkostnað, hámarkaðu afköstin og njóttu þess sem EFI kerfið býður upp á
  • Sláðu hátt gras við blautar aðstæður því sláttuborðið er drifið með drifskafti og hefur því engar reimar!
  • Einfaldlega reistu sláttubúnaðinn upp á rönd, þá kemstu að hnífunum til að þrífa þá og brýna
  • Vertu fljótur að vinna verkið með einstakri Walker Zero Turn útfærslu
  • Hámarkaðu afköstin með Walker graslyftibúnaðinum
Walker D21 Hi-Dump
walker d21d

Einstök uppsöfnun á grasi

Grasuppsöfnun hefur alveg frá byrjun verið aðalatriðið í hönnun Walker GHS ( Grass High Dump System) vélanna.

Hið einstaka GHS (grasupphirðikerfi) myndar öflugt sog á grasinu sem lágmarkar að grasið klessist saman þegar það er blautt og skilar því góðum afköstum við uppsöfnun á grasi. Framan á sláttuvélinni er sláttuborð með tveimur hnífum sem snúast á móti hvor öðrum inn að miðju sláttuborðsins. Þeir slá í framhaldinu grasið í gegnum blásturshjól (viftu) sem saxar grasið og þeytir því áfram upp í graskassann sem framleiddur er úr sterku plastefni (polyethylene).

T25i lyftibúnaður á kassa

Graskassinn tekur 360 ltr. af grasi. Hægt er að lyfta graskassanum upp í 170 cm. hæð og dumpa grasinu þá beint upp á vörubílspall eða í kerru á 20 sekúndum. Lyftibúnaðurinn er drifinn af 12-volta raf/ vökvakerfi. Lyftibúnaðinum er stjórnað með 2 óháðum rofum sem staðsettir eru hægra megin við ökumannssætið.

.

 

zero-radius_turn

Walker Zero Turn (0-gráðu) beygjuradíus

Gras uppsöfnunarkerfið er hannað sem hluti hennar. Eykur því ekki ummál hennar eða takmarkar á nokkurn hátt lipurð vélarinnar í notkun og slætti. Sláttubúnaður vélarinnar er drifskafts tengdur. Því eru vegna engar reimar í sláttu- búnaðinum sem valda töfum þegar þær slitna, heldur er splittbolti í drifskaftinum sem brotnar við álag. Örstutta stund tekur að skipta um hann.

Hlekkir

Walker T25i bensín                      

T25i Vefsíða

The Walker Advantage

catalogs-attachment

Aðrir eiginleikar:

  • 2ja cylindra bensínmótor og vatnskældir bensín- og dísilmótorar
  • Bein innspýting ( EFI) allar götur frá árinu 1998
  • Lágur þyngdarpunktur og einfaldur stjórnbúnaður
  • Graslosunin er beint aftur á Walker vélum tegundum C, T og D
  • Graslosunin er með vökvalyftu á Walker vélum tegundum T og D
  • Stór blásari er til að tryggja grasupsöfnun í graskassa
  • 25 hestafla Kohler OHV V-Twin mótor með Delphi EFI ( beinni innspýtingu)
  • Stell vélarinnar ásamt graskassa er lyftanlegt fram og aftur á auðveldan hátt
  • Stjórnborð vélarinnar er fest á dempara sem fyrirbyggir víbring
  • Drifskaftskúpling og mekanískar bremsur
  • Öndun er á loftinntaki fyrir mótor
  • Afturhjól eru til beggja hliða á afturöxli tryggja betra jafnvægi þegar graskassanum er lyft
  • 360 ltr. graskassinn hefur möguleika á vökvalyftu ( hi-dump)
  • Blásarinn er sérhannaður fyrir uppsöfnun á grasi
  • Drifskaftið er með rílum ásamt hraðtengi. Fljótlegra er því að skipta um sláttuborð vélarinnar
  • 8 ltr. bensíntankur
  • Hraði 11.3 km/klst.
  • Einnig eru fáanleg á tegundir T frá Walker sláttuborð sem slá grasinu út til hliðar
slattuvelar med nullgradu beyjuradius
walker d21d

Walker D-Serían

Vinsæl sláttuvél fyrir verktaka, stofnanir og sveitafélög. Hinn 3ja cylindra Kubota dísilmótor (vatnskældur) eykur vinsældir vélarinnar. Einn af kostum D21 vélarinnar er rafvifta sem heldur vatnskassanum hreinum. D-línan býður upp á mismunandi sláttubúnaði á vélarnar auk fjölda fylgibúnaða í hin ýmsu verkefni.

zero-radius_turn

Walker Zero Turn (0-gráðu) beygjuradíus

Gras uppsöfnunarkerfið er hannað sem hluti hennar. Eykur því ekki ummál hennar eða takmarkar á nokkurn hátt lipurð vélarinnar í notkun og slætti. Sláttubúnaður vélarinnar er drifskafts tengdur. Því eru vegna engar reimar í sláttu- búnaðinum sem valda töfum þegar þær slitna, heldur er splittbolti í drifskaftinum sem brotnar við álag. Örstutta stund tekur að skipta um hann.

walker d21d

Einstök uppsöfnun á grasi

Grasuppsöfnun hefur alveg frá byrjun verið aðalatriðið í hönnun Walker GHS ( Grass High Dump System) vélanna.

Hið einstaka GHS (grasupphirðikerfi) myndar öflugt sog á grasinu sem lágmarkar að grasið klessist saman þegar það er blautt og skilar því góðum afköstum við uppsöfnun á grasi. Framan á sláttuvélinni er sláttuborð með tveimur hnífum sem snúast á móti hvor öðrum inn að miðju sláttuborðsins. Þeir slá í framhaldinu grasið í gegnum blásturshjól (viftu) sem saxar grasið og þeytir því áfram upp í graskassann sem framleiddur er úr sterku plastefni (polyethylene).

Walker D21 með lyftibúnaði á graskassa.

Walker D21 Hi-Dump
Walker D21 Hi-Dump

 

Walker D21 með lyftibúnaði á graskassa.

Stærð Walker D21 vélarinnar gerir henni kleift að slá minni grassvæði, og spara á sama tíma mannafla vegna snerpu og lipurðar í slætti á svæðum þar sem hefðbundnir sláttutraktórar komast ekki að og þar sem hingað til hefur þurft að nota venjulegar handvélar (vegna þrengsla). Walker vélarnar henta þess vegna vel og eru afkastamiklar við slátt á minni svæðum, umferðareyjum, meðfram girðingum, ljósastaurum og annars staðar þar sem nánast eingöngu er hægt að slá með handvélum. Vélanar henta þar að auki einnig vel við slátt á meðalstórum svæðum. Margir eigendur Walker véla segjast vera 30-50% fljótari að slá með Walker sláttutraktór en hefðbundnum sláttutraktórum vegna þess hversu lipur og notendavæn vélin og hversu mikinn handvéla og vélorfa slátt hún sparar. Þannig getur ein Walker vél komið í stað sláttutraktórs, handvéla og vélorfa að stærstum hluta.

 

Hlekkir

Walker D21 dísil                      

D21 Vefsíða       

The Walker Advantage

catalogs-attachment

      

D21 lyftibúnaður á kassa

Graskassinn tekur 360 ltr. af grasi. Hægt er að lyfta graskassanum upp í 170 cm. hæð og dumpa grasinu þá beint upp á vörubílspall eða í kerru á 20 sekúndum. Lyftibúnaðurinn er drifinn af 12-volta raf/ vökvakerfi. Lyftibúnaðinum er stjórnað með 2 óháðum rofum sem staðsettir eru hægra megin við ökumannssætið.

 

  • 20,9 hp vatnskældur, 3ja cylindra dísilmótor
  • Rafmagnsvifta við vatnskassa, snýst einnig rangsælis (hreinsar þá kerfið)
  • Stjórnborðið er fest á dempara (fyrirbyggir víbring)
  • Drifskaftskúpling og mekanískar bremsur
  • Afturhjól til beggja hliða á öxli skapa betra jafnvægi fyrir lyftanlegan (hi-dump) graskassann
  • 9 ltr. bensíntankur
  • Aflmikið rafkerfi ( 40-amp hleðsla)
  • Loftinntak (með öndun fyrir mótor)
  • Tvöfaldur vökvaknúinn driföxull
  • 360 ltr. graskassi með möguleika á vökvalyftu (hi-dump)
  • 27 cm. langur blásari fyrir grasuppsöfnun
  • Allar gerðir Walker sláttuborða passa framan á vélina
  • Drifskaft með rílum ásamt hraðtengi. Fljótlegt er því að skipta um búnað framan á vélinni
  • Hefðbundin fínriffluð dekk ( 18 x 9.50 -8)