Lynex SX1000 sláttuvél fyrir halla
SX1000 hallavélin slær í 75 gráðu halla, sú eina á markaðnum.
SX1000 vélin er aðeins 320 kg. að þyngd, léttasta hallavél á markaðnum í dag.
Sérhæfð hönnun og þyngd tækisins gera kleift að slá og halda jafnvægi í extra erfiðum brekkum.
Vélin slær við fjölbreyttar aðstæður án þess að skemma grassvörðinn. Mikilvægt á viðkvæmum og rökum svæðum þar sem sérstakrar umhverfisverndar er þörf.
Sláttubúnaður SX1000 vélarinnar
- slær fallega og skilar góðri sláttuáferð með því að kurla grasið smátt.
- slær mjög hátt og blautt gras við erfiðar aðstæður.
- hefur góða floteiginleika, hannaður til að slá mishæðótt svæði.
- með sterkbyggðum öxli með 32 stk áföstum Y-laga hnífum sem kurla grasið exta smátt.
Slá skal með vélinni „til hliðar“ fram og til baka. Byrja ofarlega eða efst í hallanum.
Sláttubúnaður XP1000 vélarinnar er, knúinn af afkastamiklu „mekanísku“ drifi/gírkassa sem hámarkar afköstin.
Rafbúnaður vélarinnar er innbyggður/sameinaður í sérstakt „module box“, er einfalt í þjónustu.
Vélin er einföld í uppbyggingu og auðveld í þjónustu. Þýðir lægri viðhaldskostnað til lengri tíma.
Kröftug gúmmíbelti með útskiptanlegum gúmmí nöglum veita jafnvægið í extra miklum höllum.
Fjarstýring vélarinnar er sú léttasta á markaðnum, aðeins 1 kg. (1,4 Ghz)
Fjarstýringin stjórnar vélinni í allt að 800 metra fjarlægð.
| Model: | SX1000 |
| Mótor: | 23 hp, B&S Vanguard, bensín |
| Þyngd: | 295 kg |
| Lengd: | 132 cm |
| Breidd: | 155 cm |
| Hæð: | 95 cm |
| Snúningsradíus: | 0° |
| Slær upp í: | 75° |
| Fjarstýring: | 800 m, 2,4 GHz |
| Sláttubúnaður: | 100 cm |
Lynex SX sláttuvélar fyrir halla
Vöruúrval:
- SX1000, fjarstýrð, 23hp B&S bensínmótor, slær 1,0 metra, slær allt að 75 gráður. Sláttubúnaður innbyggður í tækið. Þessi SX1000 vél er 90% allra seldra véla hjá Lynex.
- TX1100 fjarstýrð, 30hp Kubota dísilmótor, með 3ja punkta beisli. Sláttubreidd 1,50m í allt að 60 gráðu höllum Sláttubúnaður fylgir. Hægt að fá við tækið röku o.fl. aukabúnað.
- TX1200 fjarstýrð, 45hp Kubota Turbo dísilmótor, með 3ja punkta beisli. Sláttubreidd 1,6m í allt að 55 gráðu höllum. Sláttubúnður fylgir ekki. Hægt að fá við tækið röku o.fl.


