Gianni Ferrari Turbo, 4WD
Gianni Ferrari Turbo sláttuvélar
Öryggið er númer 1
Turbo sláttuvélanar eru byggðar með öryggi og áreiðanleika að leiðarljósi. Vélarnar og fylgibúnaður hefur verið margreyndur skv. stöðlum frá EES varðandi öryggi, hávaða, titring og útblástur. Sérstakur búnaður hefur verið settur á vélarnar til að tryggja hámarksöryggi.
Turbo 1W – 4WD
Öflug og nett
Turbo 1 4WD vélin er mjög afkastamikil á sléttum svæðum og í aflíðandi höllum. Öflugur 3ja cyl. dísilmótor og stór blásari fyrir graskassann gera vélinni kleift að slá hratt og skila góðum sláttuárangri, einnig við slátt í háu og blautu grasi. 1100 lítra graskassinn, ásamt vökvalyftibúnaði hans (Hi-Dump) sem lyftir upp í 2.1 metra hæð léttir þér störfin og eykur afköst (hámarkshraði vélarinnar er 18 km/klst). Vélin er nett og hentar því vel við slátt á þröngum stígum og við erfiðar aðstæður. Turbo 1W (4WD) vélin er útbúin með HTC (Hydrostatic Traction Control) fjórhjóladrifi til tryggingar á fullkomnu togi við vinnu í höllum með hörðu undirlagi. Gianni Ferrari fyrirtækið hefur einkaleyfi á þessum HTCbúnaði.
Turbo 4 – 4WD
Turbo 4 W – 4WD vélin er byggð fyrir hámarks afköst og tog
Mjög góð við slátt í höllum. Lágur þyngdarpunktur Turbo 4 vélarinnar tryggir að hægt er að slá í hliðarhöllum, þar sem samkeppnisaðilar geta ekki slegið með sínum vélum. Hið sérstæða HTC (Hydrostatic Traction Control) sem GF fyrirtækið hefur einkaleyfi á skilar sér í snörpum beygjuradíus sem gerir vélina sérlega lipra og öfluga í allri notkun auk þess að vera með 1300 ltr. graskassa.
u0026nbsp;r
u0026nbsp;
Innblásturs- og uppsöfnunarkerfi
Innblásturs raninn sem tengir saman sláttuborðið og viftuna ( þeytir grasinu upp í kassann) er byggður úr sterku stáli sem lengir líftímann. Viftan er öflug, einnig við lágan snúing auk þess að vera frekar hljóðlát. Blástursviftan er uppbyggð með 6 bognum blöðum, sem auðvelt að skipta um þau þegar þau slitna eða skemmast.
u0026nbsp;r
Grassafnari
Grassafnarinn er framleiddur úr sterku „polyethylene“ efni með síu, afturhurð, túðu sem dreifir grasinu um kassann og viðvörunarflautu sem pípir þegar kassinn er fullur. Grassían er samsett úr zinkhúðuðu járnneti ásamt hlífðarplötu úr plasti, sem minnkar tímann við þrif. Afturhurðin opnast sjálfkrafa þegar graskasanum er lyft aftur. Sterkbyggður lyftibúnaður lyftir kassanum upp í allt að 220 cm hæð, sem auðveldar tæmingu á kassanum upp á vörubílspall eða í kerru. Þessi búnaður lágmarkar til muna tímann sem fer í slátt og við losun á grasi. Búnaðurinn er vökvaknúinn og hámarkar nýtingu á mannskap hverju sinni.r
Bremsur
Tvær stórar diskabremsur sem staðsettar eru á mismunadrifinu tryggja örugga bremsun einnig í bröttum höllum.
u0026nbsp;
u0026nbsp;r
Mótor
Gianni Ferrari býður upp á Kubota mótora, 3ja og 4ra cylindra, en þeir eru einir þeir bestu sem í boði eru. Þeir tryggja hámarks öryggi og afl (skv. nýjustu reglugerðum) ásamt lágmarks hávaða fylgjandi sömu stöðlum.r
Drif/gírkassi Turbo 1 og Turbo 2
Turbo 1 og Turbo 2 vélarnar eru með uppskiptanlegri (step up) sjálfskiptingu með stiglausri dælu ásamt vökvamótor. Driflæsing er í framöxli vélanna.
Drif/gírkassi Turbo 1 W – 4WD
Með tvívirkri gírskiptingu með tveimur vökvamótorum (orbital) sem tengdir eru afturhjólunum. Kerfið er með deiliventli, sem varnar þvingunum, þar sem hann deilir átakinu á milli hjóla. Það kemur í veg fyrir skalla og skemmdir á grassvæðum og eykur stjórnhæfni vélarinnar.r
Drif/gírkassi Turbo 4
Sjálfskiptingin er tvívirk og mötuð af kerfi sem samanstendur af stiglausri vökvadælu með öflugu drifi sem stjórnar tveimur vökvamótorum, einum á hvorum öxli. Hvor vökvamótor um sig er staðsettur á mismunadrifi og tengir saman tvo gíra í olíubaði sem flytja aflið til hvors hjóls um sig með niðurgírun sem leiðir til aukins togkrafts. Kerfið er áfast sterkbyggðu stelli vélarinnar, sem er byggt er úr 20mm þykku stáli. Þessi búnaður er mjög öruggur og öflugur, hann gerir vélinni kleift að klífa á auðveldan hátt í erfiðum brekkum. Driflæsing er á mismunagírnum á framöxlinum, sem eykur enn togkraft vélarinnar. Afturdrif vélarinnar er ólíkt hefðbundnum drifum, þar sem þar er vökvatjakkstýri, sem eykur snúningsradíus vélarinnar til muna. Annar búnaður sem GF hefur einkaleyfi á er sjálfvirk stýring á framöxli (automatic proportional control). Vélinni er því hægt að snúa á aðeins 60 cm. snúningsradíus! Vélin hefur einkar lágan þyngdarpunkt, sem gerir mögulegt að keyra til hliðar í halla án þess að eiga á hættu að vélin velti.r
Veltigrind (ROPS)
Veltigrindin veitir fullkomið öryggi fyrir stjórnanda vélarinnar, ef vélin skyldi velta. Veltigrindinni fylgir einnig öryggisbelti.r
Aðstaða ökumanns
Þar sem Turbo vélarnar eru „Professional“ vélar þá hefur mikið verið lagt upp úr góðri vinnuaðstöðu fyrir ökumanninn. Öllum stjórnbúnaði vélarinnar er þess vegna þægilega komið fyrir í handföngum hægra megin við stjórnandann. Aðvörunarljós og mælar eru staðsettir á stýrisarminum en hann er hægt að stilla í þá hæð sem hentar stjórnandanum hverju sinni. Aðgengi að sætinu er alltaf frjálst þar sem enginn búnaður er á milli stýrisins, sætisins og fótapallsins. Vökvastýrið hefur sjálfstæða dælu sem stjórnar tvívirkum stýristjakki auk þess að tengja hann við liðhúsið. Fótapallurinn er stillanlegur upp og niður án þess að hafa áhrif á sláttuborðið sem er vökvaknúið. Sætið er stillanlegt í mismunandi stöður sem eykur þægindi stjórnandans. Það er stillanleget í 3 mismunandi hæðir og er með sleða til að færa það fram og aftur auk armpúða. Einnig er hægt að fá sæti með hita ef þess er óskar
Hlíf yfir veltigrind
Veitir skjól fyrir sól og rigningu. Skýlir einnig stjórnanda vélrinnar fyrir trjágreinum þegar verið er að vinna undir trjám.r






















