Waler d21 in action

Walker D21

Walker D21

walker d21d

 

D-Serían

Vinsæl sláttuvél fyrir verktaka, stofnanir og sveitafélög. Hinn 3ja cylindra Kubota dísilmótor (vatnskældur) eykur vinsældir vélarinnar. Einn af kostum D21 vélarinnar er rafvifta sem heldur vatnskassanum hreinum. D-línan býður upp á mismunandi sláttubúnaði á vélarnar auk fjölda fylgibúnaða í hin ýmsu verkefni.

Walker Zero Turn (0-gráðu) beygjuradíus

Gras uppsöfnunarkerfið er hannað sem hluti hennar. Eykur því ekki ummál hennar eða takmarkar á nokkurn hátt lipurð vélarinnar í notkun og slætti. Sláttubúnaður vélarinnar er drifskafts tengdur. Því eru vegna engar reimar í sláttu- búnaðinum sem valda töfum þegar þær slitna, heldur er splittbolti í drifskaftinum sem brotnar við álag. Örstutta stund tekur að skipta um hann.

walker d21d

Einstök uppsöfnun á grasi

Grasuppsöfnun hefur alveg frá byrjun verið aðalatriðið í hönnun Walker GHS (Grass High Dump System) vélanna.

Hið einstaka GHS (grasupphirðikerfi) myndar öflugt sog á grasinu sem lágmarkar að grasið klessist saman þegar það er blautt og skilar því góðum afköstum við uppsöfnun á grasi. Framan á sláttuvélinni er sláttuborð með tveimur hnífum sem snúast á móti hvor öðrum inn að miðju sláttuborðsins. Þeir slá í framhaldinu grasið í gegnum blásturshjól (viftu) sem saxar grasið og þeytir því áfram upp í graskassann sem framleiddur er úr sterku plastefni (polyethylene).

Walker D21 með lyftibúnaði á graskassa.

Walker D21 Hi-Dump

 

Walker D21 með lyftibúnaði á graskassa.

Stærð Walker D21 vélarinnar gerir henni kleift að slá minni grassvæði, og spara á sama tíma mannafla vegna snerpu og lipurðar í slætti á svæðum þar sem hefðbundnir sláttutraktórar komast ekki að og þar sem hingað til hefur þurft að nota venjulegar handvélar (vegna þrengsla). Walker vélarnar henta þess vegna vel og eru afkastamiklar við slátt á minni svæðum, umferðareyjum, meðfram girðingum, ljósastaurum og annars staðar þar sem nánast eingöngu er hægt að slá með handvélum. Vélanar henta þar að auki einnig vel við slátt á meðalstórum svæðum. Margir eigendur Walker véla segjast vera 30-50% fljótari að slá með Walker sláttutraktór en hefðbundnum sláttutraktórum vegna þess hversu lipur og notendavæn vélin og hversu mikinn handvéla og vélorfa slátt hún sparar. Þannig getur ein Walker vél komið í stað sláttutraktórs, handvéla og vélorfa að stærstum hluta.

 

Walker D21 Hi-Dump

D21 lyftibúnaður á kassa.

Graskassinn tekur 360 ltr. af grasi. Hægt er að lyfta graskassanum upp í 170 cm. hæð og dumpa grasinu þá beint upp á vörubílspall eða í kerru á 20 sekúndum. Lyftibúnaðurinn er drifinn af 12-volta raf/ vökvakerfi. Lyftibúnaðinum er stjórnað með 2 óháðum rofum sem staðsettir eru hægra megin við ökumannssætið.

Aftur
  • 20,9 hp vatnskældur, 3ja cylindra dísilmótor
  • Rafmagnsvifta við vatnskassa, snýst einnig rangsælis (hreinsar þá kerfið)
  • Stjórnborðið er fest á dempara (fyrirbyggir víbring)
  • Drifskaftskúpling og mekanískar bremsur Afturhjól til beggja hliða á öxli skapa betra jafnvægi fyrir lyftanlegan (hi-dump) graskassann
  • 9 ltr. bensíntankur
  • Aflmikið rafkerfi ( 40-amp hleðsla)
  • Loftinntak (með öndun fyrir mótor)
  • Tvöfaldur vökvaknúinn driföxull
  • 360 ltr. graskassi með möguleika á vökvalyftu (hi-dump) 27 cm. langur blásari fyrir grasuppsöfnun
  • Allar gerðir Walker sláttuborða passa framan á vélina
  • Drifskaft með rílum ásamt hraðtengi. Fljótlegt er því að skipta um búnað framan á vélinni.
  • Hefðbundin fínriffluð dekk ( 18 x 9.50 -8)

- 20.9-HP Kubota, water-cooled, three-cylinder diesel engine
- Electric radiator fan with reversible self-cleaning action
- Clam-shell style body and chassis
- Shock-mounted instrument panel
- Manual PTO clutch and brake
- Dual tail wheel for extra flotation
- 5-gallon fuel tank
- High capacity electric system (40-amp charge)
- Remote air intake
- Dual hydro-axle
- 7.0 bushel catcher with GHS option (9.5 bushel catcher optional)
- Uses all Walker Decks
- Splined PTO drive shaft speeds deck and attachment installation
- Low-profile drive tires (10″ wheel)

 

Hlekkir

Walker D21

catalogs-attachment

The Walker Advantage

Vefsíða

Aftur

 

  • 9 hp vatnskældur, 3ja cylindra dísilmótor
  • Rafmagnsvifta við vatnskassa, snýst einnig rangsælis (hreinsar þá kerfið
  • Stjórnborðið er fest á dempara (fyrirbyggir víbring)
  • Drifskaftskúpling og mekanískar bremsur
  • Afturhjól til beggja hliða á öxli, betra jafnvægi fyrir lyftanlegan (hi-dump) graskassa
  • 9 ltr. bensíntankur
  • Aflmikið rafkerfi ( 40-amp hleðsla)
  • Loftinntak (með öndun fyrir mótor)
  • Tvöfaldur vökvaknúinn driföxull
  • 360 ltr. graskassi með möguleika á vökvalyftu (hi-dump)
  • 27 cm. langur blásari fyrir grasuppsöfnun
  • Öll Walker sláttuborðin passa framan á vélina
  • Drifskaft (með rákum/rílum) ásamt hraðtengi Fljótlegra er því að skipta um sláttuborð/búnað framan á vélinni.
  • Hefðbundin fínriffluð dekk ( 18 x 9.50 -8)